Skynörvun.is
Cura Minky þyngingarteppi
Cura Minky þyngingarteppi
Farðu með notalegheitin í sófanum á nýtt stig með nýju uppáhalds teppi allrar fjölskyldunnar!
CURA Minky þyngdarteppi – umvefur þig eins og hlýtt faðmlag! Að beiðni margra viðskiptavina kemur teppaútgáfa af vinsælu þyngingarsænginni CURA Pearl, hannað fyrir stofuna! Frábær hugmynd þar sem sófinn eða hægindastóllinn er staðurinn sem við veljum okkur oft á kvöldin til að komast í ró og slaka á eftir langan dag.
Líkamleg og andleg áhrif CURA Minky geta verið þau sömu og CURA Pearl, þ.e. aukin slökun og minni streita, kvíði og áhyggjur. Teppið er fyllt með sömu glerperlum og CURA Pearl þyngingarsængin og er ysta lagið úr dásamlega silkimjúku efni. CURA Minky er með fyllingu úr sílikon glerperlum. Perlurnar eru saumaðar í hólf til að dreifa þyngdinni jafnt um allt teppið.
Rannsóknir hafa sýnt að magn gleðihormónana oxytocin og serotonin eykst í líkamanum með svokölluðu DPTS (deep press touch stimulation), sem næst á náttúrulegan hátt þegar þung teppi eru notuð. Hormónin gera okkur róleg og örugg, draga úr kvíða, streitu og sársauka
Geymslupoki fylgir.
Athugið
Allir ættu að geta notað Cura Minky – jafnvel ung börn frá tveggja til þriggja ára aldri. Hafðu samt í huga að barnið verður sjálft að geta lyft teppinu af sér. Engin þekkt áhætta fylgir því að nota þyngdarteppi eða þyngingarsængur. Framleiðandinn CURA of Sweden mælir þó með því að þú ráðfærir þig við lækni fyrir notkun ef þú hefur til dæmis skerta lungnastarfsemi, ert með veikburða vöðva, barnshafandi, með alvarleg hjartavandamál eða beinþynningu.
Vörulýsing
Ysta efni: Flís (polyester)
Fylling: Litlar gler perlur (sílikon)
Þyngd: 6 kg
Stærð: 140*200 cm
Þvottaleiðbeiningar
Þvottavél við 40°C
Má ekki fara í þurrkara
Gott er að viðra teppið reglulega