Skilmálar

Við erum einungis netverslun en hægt er að hafa samband við okkur á netfangið pantanir@skynorvun.is til að fá að koma og skoða eða fá okkur í heimsókn með vörur.

Almennt

Hugörvun ehf.
Kennitala: 611293-2249
pantanir@skynorvun.is


Hugörvun ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. Vegna rangra verð- eða lagerupplýsinga og einnig að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Verð, skattar og gjöld
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Öll verð í netversluninni (og sendingarkostnaður) eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

 

Afhending vöru

Þú getur fengið vörurnar sendar en ef þú kýst að sækja getur þú gert það án endurgjalds í verslun Taubleyjur.is, Síðumúla 23, gengið inn frá Selmúla, þitt er valið.

Þær vörur sem fara í póst er dreift af Dropp og gilda afhendingar- og ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropps um afhendingu vörunnar. Hugörvun ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá vöruhúsi okkar til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Kemur það upp að vara sé ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Að skipta eða skila vöru
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með millifærslu fyrir vörunni en flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Skil á vöru geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru í verslun Taubleyjur.is, Síðumúla 23, gengið inn um Selmúla eða sendi okkur vöruna með pósti á eigin kostnað.

Vinsamlegast hafið samband við pantanir@skynorvun.is með spurningar.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur (ef fyrirtækið er með lögheimili í Reykjavík) eða Héraðsdómi Reykjaness (ef fyrirtækið er með lögheimili í t.d. Garðabæ eða Kópavogi)